Hrútur (20. mars - 20. apríl):
Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður að lofa öllu
fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú
ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá
tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert kvikindi, en það hjálpar
hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.
Naut (20. apríl - 21. maí ):
Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama
farinu.
Peningar og þægindi eru það eina sem þú hugsar um, enda háður
nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað
og selur sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en
stífluð rotþró.
Tvíburi (21. maí - 20. júní ):
Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu
tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað ókláruð járn í eldinum.
Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur
ekki staðið við. Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum
þínum í blaður og óþarfa.
Krabbi (21. júní - 23. júlí ):
Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa,
og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla og kvarta. Þú
ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og
gömlum minningum.
Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd
og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og
sjálfsvorkunnsamur.
Ljón (22. júlí - 23. ágúst):
Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa
áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar á
andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að
það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en
þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.
Meyja (23. ágúst - 23. september):
Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta,
gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei neitt sem gagnast
öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir
aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert
stressuð taugahrúga.
Vog (23. september - 22. október):
Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og
eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það
tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það loksins gerist,
ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of
upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.
Sporðdreki (23. október - 21. nóvember):
Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann
(þráhyggja) og ert því einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert
ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda
úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins
og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.
Bogmaður (22. nóvember - 21. desember):
Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á
hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín,
ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta
hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í
verkefni sem þú ræður ekki við.
Steingeit (21. desember - 20. janúar):
Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum
siðum og reglum, alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að
gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir
stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að
breiða yfir með titlum og merkjavöru.
Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar):
Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan
samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar.
Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og
hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun alltaf einn,
frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.
Fiskur (19. febrúar - 20. mars):
Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú
átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt
vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá
fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert sérfræðingur í
sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.